AN Lausnir

Sagan

AN Lausnir er stofnað formlega 5.apríl 2011. Stofnendur eru 11 talsins og eru flestir þeirra tengdir hugbúnaðargerð á einhvern hátt. Þar á meðal eru 7 kerfis- og tölvunarfræðingar með áratuga reynslu í hugbúnaðargerð.

stofnendurRætur fyrirtækisins liggja í deiglu sem myndast inn í Austurneti ehf, sem er klasafyrirtæki sem var stofnað til að draga saman þekkingu í upplýsingatækni á austurlandi og mynda sameiginlegan slagkraft. Austurnet hefur þá stefnu að takmarka mjög áhættu og ábyrgð er snerta eignir og skuldir. Inn í Austurnet voru komin nokkur hugbúnaðarverkefni sem höfðu vaxið þar og dafnað og umfang þeirra var orðin meginstoðin í rekstri Austurnets, eins þótti ljóst að verkefnin voru sjálfbær til eigin rekstrar. Því var ákveðið að taka út þann þátt er snéri að hugbúnaðargerð og þjónustu og stofna AN Lausnir ehf.


Nafn fyrirtækisins er með forskeytið AN sem vísar í til upprunans í Austurneti. Nafnið AN Lausnir er í raun þýðing úr ensku heiti fyrirtækisins, sem er AN Software Solutions.

Frá fyrsta degi var verkefnastaðan mjög góð, enda byggt á þriggja ára uppbyggingu Austurnets í forritunarverkefnum.