AN Lausnir leggur áherslu á einfaldar og skilvirkar hugbúnaðar lausnir. Byggjum gagnabrýr á milli ólíkra kerfa til að samþætta gögn og hugbúnað í einsleita ferla.
Brýr á milli kerfa:Mörg fyrirtæki eru með mörg kerfi sem gegna mismunandi hlutverkum. Bókhald, verkbókhald, mannauðskerfi, framleiðslukerfi, launakerfi osrfv, er oft í sitthvoru kerfinu og jafnvel verið að viðhalda sömu gögnum á fleiri en einum stað. Með því að byggja gagnabrýr á milli slíkra kerfa má nýta betur þau kerfi sem þegar er búið að fjárfesta í.
Ráðgjöf um nýja lausn:
Það getur líka verið skynsamlegt að skipta yfir í kerfi sem hefur möguleika á að sinna öllum rekstrarþáttum innan sömu hugbúnaðar lausnar. Nokkur slík kerfi eru til að á markaðnum í dag og getur það verið snúið að velja rétta kerfið. Dæmi um slík kerfi eru t.d. TOK, DK, Dynamics NAV og Dynamics Axapta. AN Lausnir geta veitt ráðgjöf þegar kemur að vali á slíkri lausn.
Verkfæri:
Til að vinna að lausnum þá beita AN Lausnir nokkrum verkfærum.
Sharepoint 2010: AN Lausnir hafa unnið mikið með sharepoint, bæði hvað varðar uppsetningu og stillingar á grunnkerfinu, sem og forritun á vefhlutum. Sharepoint er öflug miðlæg gátt fyrir notendastilltar upplýsingar og býður um á mikla möguleika í útfærslum.
Forritum vefþjónustur: Til að gera gögn aðgengileg úr einu kerfi yfir í annað getur verið heppilegt að skrifa vefþjónustu sem gerir viðkomandi gögn aðgengileg fyrir annan hugbúnað, t.d. á vef að sækja gögnin og vinna með þau og birta. AN Lausnir hafa öfluga sérfræðinga á þessu sviði.
Tengingar við vefþjónustur: Á sama hátt þá getur verið öflugt að skrifa viðmót, t.d. vefhluta í sharepoint sem sækir gögn í gegnum vefþjónustur til að birta og jafnvel uppfæra.
Skýrslugerð ( Reporting Services ): Ef er verið að nota MS SQL gagnagrunna, þá er hægt að skrifa sértækar skýrslur í gegnum skýrslugerðartól sem fylgir SQL server.